Lengri námskeið

Að ná árangri í atvinnuleit

Markmið

Námskeiðið sýnir þátttakendum fram á að jákvætt viðhorf eykur ekki einungis stórlega líkurnar á að fá vinnu, heldur gerir það lífið mun auðveldara og hamingjuríkara.

Meðal þess sem farið er yfir

  • Hvað ræður úrslitum við atvinnuleit?
  • Hvaða máli skiptir hegðun eða viðhorf umsækjanda í atvinnuviðtalinu?
  • Getur vani eða vandfýsni orðið þess valdandi að fólk fái ekki vinnu?
  • Hvað er til ráða fyrir þá sem hafa gefist upp?
  • Skiptir breytt og betra viðhorf einhverju máli?
  • Áhrif þess að sjá tækifærin í stöðunni frekar en að einblína á neikvæðu hliðarnar.
  • Hvernig getur fólk öðlast hamingjuríkt líf til framtíðar?
  • Hvaða leiðir eru vænlegar til árangurs?
  • Framkoma í atvinnuviðtali.

Helsti ávinningur af námskeiðinu

  • Að hafa aukið sjálfstraust í atvinnuviðtalinu.
  • Að tileinka sér jákvætt viðhorf.
  • Að horfa bjartari augum til framtíðar.
  • Að auka líkurnar á því að fá starf við sitt hæfi.
  • Að gera ferilskrá og kynningarbréf.

Lengd

Lengd fyrirlestrar er ein klukkustund en námskeiðsins breytileg. Hafið endilega samband varðandi lengd á námskeiðinu.

Fyrir hverja

Námskeiðið er hugsað fyrir atvinnuleitendur á öllum aldri.