Auðmýkt gagnvart þekkingu

Auðmýkt gagnvart þekkingu

Markmið

Að vekja okkur til umhugsunar um hvað þekking er vandmeðfarin og hversu auðvelt er að laga hana að eigin skoðunum og stefnu. Hversu oft höfum við haldið að hinum endanlega þekkingarpunkti hafi verið náð? Tökum dæmi um það og veltum fyrir okkur hvað við getum lært af sögunni.

„Fyrst hunsa þeir þig, svo hlægja þeir að þér, síðan berjast þeir á móti þér, að endingu vinnur þú“ Gandhi

Meðal þess sem farið er yfir

  • Það virðist vera okkur frekar eðlislægt að fara í vörn þegar við heyrum hluti sem ganga þvert á okkar þekkingu. Hvaða þýðingu hefur það fyrir framþróun þekkingar?
  • Oft hafa einstaklingar gert uppgötvanir eða komið fram með nýjar hugmyndir sem hafa verið þvert á ríkjandi kenningar og hafa í kjölfarið verið hafðir að háði og spotti. Síðar hefur svo komið í ljós að þeir höfðu rétt fyrir sér en voru bara á undan sinni samtíð. Getum við lært eitthvað af þessum dæmum?
  • Aðferðir sem notaðar voru við að auglýsa tóbak um miðja síðustu öld þættu líkast til ósmekklegar nú til dags. Þá vissum við ekki hvað tóbak er skaðlegt! Er þá ekki rökrétt að spyrja sig: Hvað mun fólki, 100 árum héðan í frá, finnast athyglisvert við okkar tíma? Hvað af því sem okkur þykir núna eðlilegt gæti jafnvel þótt ámælisvert eftir 100 ár?

Spurningar sem ég mun leitast við að svara í fyrirlestrinum

  • Getum við skiptum um skoðun?
  • Er einhvað meitlað í stein? Er til sönn þekking?
  • Erum við alvitur? Okkar skoðanir eru jú alltaf þær réttu, ekki satt?
  • Er allt rétt sem okkur vitrari menn segja? Erum við auðtrúa?
  • Er hreinlega gerlegt fyrir okkur að samþykkja upplýsingar sem ganga þvert á fyrri þekkingu okkar?
  • Erum við með rökhugsun? Trúum við öllu sem okkur er sagt?

Helsti ávinningur af námskeiðinu

  • Aukin trú á veröldina og þjóðfélagið sem við búum í.
  • Betri innsýn í það hvert veröldin okkar er raunvörulega að þróast þegar þekking er annars vegar.
  • Að þátttakendur líti framtíðina björtum augum.

Lengd

Lengd fyrirlestrar er ein klukkustund með umræðum í lokin.

Fyrir hverja

Ef þið viljið bjóða upp á einhvern allt öðruvísi fyrirlestur fyrir starfsfólk ykkar þá er þetta fyrirlestur sem kemur skemmtilega á óvart og gerir fólk jafnvel orðlaust.