Viðhorf okkar til öryggismála

Viðhorf okkar til öryggismála

Markmið

Að hvetja þátttakendur til að hugsa út í öryggismál í víðara samhengi á sínum vinnustað og að fólk tengi sig við þær öryggisreglur sem almennt eru í gildi í þjóðfélaginu og á vinnustaðnum.

Meðal þess sem farið er yfir

  • Að fá fólk til að hugsa viðhorf sitt til öryggis, verkferla og samvinnu á vinnustað
  • Settur er fram samanburður við fjallamennsku og það öryggi og öryggisreglur sem þá þarf að hafa að leiðarljósi
  • Hvernig getur viðhorf fólks ráðið úrslitum þegar öryggismál eru annars vegar?
  • Eftirfarandi spurningum er jafnframt velt upp:
  • Hvað finnst mér um öryggi?
  • Hvernig ætla ég að bregðast við þessum reglum?
  • Skipta reglur máli…?
  • Hvernig tengjast slys á fjöllum öryggisreglum á vinnustað?

Helsti ávinningur af fyrirlestrinum

  • Aukin vitund um það að slys geta hent alla, alls staðar og hvenær sem er.
  • Að þátttakendur tengi sig við mikilvægi öryggismála og að öryggisreglur eigi líka við um þá, en ekki bara þá sem hafa lent í slysum.
  • Að stuðlað verði að fækkun slysa á vinnustöðum, enda er líf án slysa líf sem allir kjósa sér.

Lengd

Lengd fyrirlestrar er ein klukkustund en námskeiðsins breytileg. Hafið endilega samband varðandi lengd á námskeiðinu.

Fyrir hverja

Námskeiðið er hugsað fyrir stærri framleiðslufyrirtæki, spítala, heilbrigðisstofnanir, tryggingafélög og önnur fyrirtæki sem hafa öryggi starfsmanna eða viðskiptavina að leiðarljósi.