Heimur batnandi fer

Heimur batnandi fer

Markmið

Að varpa ljósi á þróun okkar mannfólksins hérna á jörðinni. Hver er staðan? Í hvaða átt stefnum við? Erum við að bæta okkur og ef svo er þá á hvaða sviðum?

Skiptir máli að hafa trú á veröldinni sem við búum í? Ég tel svo vera. Megin markmið þessa fyrirlesturs er að benda á það góða og jákvæða sem er allt í kringum okkur, hluti sem við tökum kannski ekki eftir dagsdaglega.

Að hafa starfsfólk sem hefur trú á að þjóðfélagið sem það býr í stefni í rétta átt getur gert góðan vinnustað enn betri. Markmið fyrirlestrarins er ekki að vera nein sérstök lofræða heldur raunsætt mat á veröldinni sem við búum í.

Meðal þess sem farið er yfir

  • Bölsýnisspár: Höfum við ekki flest öll hlustað á fyrirvaralausar spár um aukna fátækt, væntanlegar hungursneyðir, farsóttir í aðsigi, göt á ósonlaginu, súrt regn sem eyðilegði skóga, vötn og höf, og Y2K-aldamótatölvuveirur en hvað af þessu hefur ræst?
  • Erum við orðin hörmungafíklar? Ef svo er, þá hvers vegna og hvað getum við gert til að spyrna við fótum?
  • Getur verið að það dragi úr fólksfjölgun vegna minni ungbarnadauða?
  • Hvað hefur áunnist í heiminum frá iðnbyltingunni annað en að konur hafa öðlast kosningarétt?
  • Hvaða sýn höfum við á veröldina og hvaðan kemur þessi sýn? Hvaða áhrif hefur „framboðshlutdrægni“ á þessa sýn okkar?
  • Hvernig hefur glæpatíðni verið að þróast í heiminum okkar?
  • Hvernig hefur þróunin verið á fátækt, hungri, ungbarnadauða, læsi og lífslíkum í heiminum okkar?
  • Hvernig tökum við á móti upplýsingum, frá t.d. fjölmiðlum?
  • Skoðum jákvæðar þjóðfélagsbreytingar.

Helsti ávinningur af námskeiðinu

  • Aukin trú á veröldina og þjóðfélagið sem við búum í.
  • Betri innsýn í það hvert veröldin okkar er raunvörulega að þróast.
  • Betri innsýn í eigin hugsanir og langanir.
  • Að þátttakendur líti framtíðina björtum augum.

Lengd

Lengd námskeiðs er tvær klukkustundir með umræðum í lokin.

Fyrir hverja

Tilvalið fyrir fyrirtæki eða deildir innan fyrirtækja eða stofnana þegar haldinn er starfsdagur. Hentar einnig vel til að brjóta aðeins upp daginn og koma með nýja og ferska vinda inn á vinnustaðinn.

Ef þið viljið bjóða upp á einhvern allt öðruvísi fyrirlestur fyrir starfsfólk ykkar þá er þetta fyrirlestur sem kemur skemmtilega á óvart og gerir fólk jafnvel orðlaust.